!!!!!!!!!!!
Ungur maður sem réð sig sem leiðbeinanda í
gagnfræðaskóla var orðinn ansi þreyttur á nemendum sínum eftir fyrstu
vikuna. Í einum tímanum, þegar honum þótti börnin sína takmarkaða
færni, sagði hann: „Mig langar að biðja alla þá sem eru heimskir að
standa upp.“ Enginn stóð upp og eftir mínútu þögn sagði
leiðbeinandinn: „Hvað er að ske, eruð þið öll vitringar?“ Þá stóð
einn ungur piltur upp og kennarinn spurði: „Svo þú telur þig heimskan?“
Drengurinn svaraði: „Nei, ég bara vorkenndi þér að standa þarna einn.“
!!!!!!!!!!!
Forstjórafrú
lenti í eldsvoða og brenndist. Andlit frúarinnar fór verst og þurfti að
græða nýtt skinn á hana. Hún var ekki með nóg skinn sjálf í
ígræðsluna svo bróðir hennar sem jafnframt er bílstjóri (sendisveinn)
forstjórans, eiginmanns hennar, bauðst til að gefa skinn. Það gekk upp og
var tekið skinn af rasskinn bróðursins og grætt á kinnar
forstjórafrúarinna.
Þegar kinnarnar voru grónar kom forstjórafrúin til bróður síns og vildi
launa honum greiðann en hann sagði, „þú ert sko margbúinn að launa mér.
Mér er það sérstök ánægja að sjá manninn þinn kissa þig á kinnarnar.
Ég þarf ekki meira.“
!!!!!!!!!!!
Íri var á bar og sat að
sumbli. Þegar hann var búinn að fá nóg og ætlaði að standa upp af
barstólnum
datt hann beint á andlitið. Hann reyndi að standa upp, en datt aftur. Þá
skreið hann út að hurð. Þar
reyndi hann að standa upp og aftur datt hann. Hann skreið út og ákvað að
skríða þessa 600 metra
heim til sín. Þar reyndi hann enn eina ferðina að standa upp og enn sama
sagan hann datt. Hann skreið
upp stigana og skreið svo upp í svefnherbergi og datt beint á andlitið í
hjónarúmið og sofnaði.
Morguninn eftir vaknaði hann við að konan hans öskraði: „Ómar varstu á
fylliríi eina ferðina enn." Já,
sagði hann. „Þeir voru að hringja frá barnum, þú gleymdir hjólastólnum
aftur."
!!!!!!!!!!!
Einu sinni voru fjórar nunnur að fara til Himnaríkis. Þar
hittu þær Lykla-Pétur og spurðu hann hvernig
þær kæmust inn. Hann sagði að þær verði að svara einni spurningu og
spurði svo fyrstu nunnuna.
„Hefurðu einhverntímann komist í snertingu við karlmann." Hún
svaraði, „ég hef bara snert einn með
puttanum." Þá sagði Lykla-Pétur: „þvoðu þér þá um puttann og
gakktu inn." Hún gerði það. Svo
spurði hann næstu nunnu sömu spurningar og hún svaraði: „Ég hef bara
faðmað einn." Lykla-Pétur
sagði þá: „Þvoðu á þér handleggina og gakktu inn." Það gerði
hún. Þá ryðst sú fjórða framfyrir þá
þriðju og Lykla-Pétur spyr. „Af hverju ryðstu framfyrir systur
þína?" Þá svarar hún. „Ég ætla sko ekki
að þvo mér um munninn eftir hún þvær sér um rassinn.
!!!!!!!!!!!
Eldri
hjón komu nýlega inn á McDonalds og pöntuðu BigMac með gosi á tilboði.
Þau skiptu öllu í tvennt, fengu aukaglas og skiptu gosinu á milli sín.
Maðurinn byrjaði að borða en konan sat og horfði á. Stúlka sem var að
þrífa stóðst þetta ekki og spurði hvort hún mætti ekki gefa þeim annan
skammt svo þau þyrftu ekki að skipta þessu á milli sín.
Gamli maðurinn svaraði: „Við erum búin að vera gift í 50 ár og við
höfum alltaf deilt öllu á milli okkar. Við breytumst ekki úr þessu.“
Stúlkan spurði konuna næst hvers vegna hún borði ekki og gamla konan
svaraði: „Hann er að nota tennurnar, það kemur að mér þegar hann er
búinn.“
!!!!!!!!!!!
Hafnfirðingur
tók sér far með leigubíl frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Leigubílstjórinn
reyndi að koma á vitrænum samræðum og spurði: ,,Veistu hver er ekki bróðir
minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?"
Hafnfirðingurinn hugsaði sig lengi um en svaraði síðan neitandi.
,,Nú, auðvitað ég sjálfur!" skríkti leigubílstjórinn og
Hafnfirðingurinn kinkaði kolli og klóraði sér.
Þegar hann kom heim í Hafnarfjörð spurði hann konuna sína sömu
spurningar:
,,Heyrðu, Dúna mín, veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín
en samt barn foreldra minna?"
,,Nei, vinur minn. Það veit ég ekki, hver er það?" svaraði
eiginkonan áhugasöm.
,,Það er einhver leigubílstjóri í Reykjavík," sagði þá
Hafnfirðingurinn, kinkaði kolli og klóraði sér!
!!!!!!!!!!!
Einu sinni var Hafnfirskur
vísindamaður að gera eldflaug til að senda til sólarinnar. Þegar annar vísindamaður
gekk framhjá sagði hann: Þú getur ekki sent þetta til sólarinnar, það
brennur til agna í hitanum.
-Djöfull geturðu verið vitlaus. sagði Hafnfirðingurinn.- ég sendi hana auðvitað
um nóttu.
!!!!!!!!!!!
Kona
kom inn í framköllun Hans Petersens og spurði búðarmanninn: ,,Stækkiði
myndir í eðlilega stærð???“ Hann svarar þá: ,,Já auðvitað, það er
sérgrein okkar!” Þá sagði konan: ,,Já ég var nefnilega með mynd af
Vatnajökli.”
!!!!!!!!!!!
Örn
Ingi og Ari voru að tala saman um mat.
Örn:
-Ég er búin að borða nautakjöt alla mína ævi og er sterkur eins og naut!
Ari:
-Skrítið, ég hef borðað fisk alla mína ævi og ég kann samt ekki að
synda!!!!!!!!!!!!!!! :-o
!!!!!!!!!!!
Hvernig
kort taka Hafnfirðingar með sér í eyðimörkina?
Svar:
Sandpappír.
!!!!!!!!!!!
Ljóska
og maðurinn hennar voru saman í bíl og maðurinn sagði við ljóskuna að
fara út og gá hvort stefnuljósið væri í lagi. Ljóskan fór út og
kallaði: -Virkar……… virkar ekki………… vikar……… virkar ekki………
!!!!!!!!!!!
-Mér
finnst eins og við höfum hist áður, ungfrú. Getur það verið í dýragarðinum?
-Það
getur verið, í hvaða búri varstu?
!!!!!!!!!!!
Tvær
ljóskur voru á gangi. Önnur þeirrakom auga á spegil, leit í hann og
sagði: -Ég kannast við þessa konu………
Þá
þreif hin af henni spegilinnog sagði:
-Já
fábjáninn þinn, þetta er ég!
!!!!!!!!!!!
-Læknir,
læknir mér vantar gleraugu!!
-Ja,
það held ég, þetta er fiskibúð.
!!!!!!!!!!!
Einu
sinni var ljóska að segja presti hafnfirðingabrandara þegar presturinn bætti
inn í:
-Veistu ekki að ég er frá Hafnarfirði?
Þá sagði ljóskan: -Ó, fyrirgefðu viltu að ég segji þetta aftur og tali
aðeins hægar!
!!!!!!!!!!!
-Hvað
ertu þungur?
-Ég
er 60 kg. með gleraugun á nefinu.
-Gleraugun?
Þau geta varla skipt svo miklu máli.
-Jú,
því ef ég er ekki með gleraugun á nefinu þá sé ég ekki hvað stendur á
vigtinni.
!!!!!!!!!!
Feðgar
af Ströndum komu í fyrsta sinn til Reykjavíkur og fóru meðalannars
í
fyrsta sinn í Perluna.
Þeir
voru undrandi á eiginlega öllu í borginni því það var margt í borginni
sem ekki var að finna í
sveitinni.
Sérstaklega vakti þó athygli þeirra í Perlunni tveir glansandi
silfurlitaðir
veggir sem ýmist opnuðust eða lokuðust.
Drenghnokkinn
spurði: Hvað er þetta eiginlega, pabbi? Faðirinn, sem hafði
aldrei
séð lyftu fyrr á ævinni svaraði: Sonur sæll, ég hef aldrei séð
nokkuð
þessu
líkt á ævinni og ég veit hreinlega ekki hvað þetta er.
Meðan
feðgarnir stóðu hugfangnir fyrir framan veggina með undrunarsvip á
andlitinu
bar þar að þéttholda konu í hjólastól sem ók að hreyfanlegu
veggjunum
og þrýsti þar á hnapp. Veggirnir opnuðust og konan í
hjólastólnum
fór
inn í lítið rými. Síðan lokuðust veggirnar og Strandafeðgar horfðu á
litla
hringlaga hnappa með tölustöfum sem blikkuðu með reglulegu
millibili.
Þeir
fylgdust með þessu uns efstu tölunni var náð og þá fóru ljósin að
blikka
í öfugri röð. Að lokum opnuðust veggirnir og út gekk glæsileg
ljóshærð
kona á þrítugsaldri. Faðirinn sem starði dolfallinn á ungu konuna
hnippti
í soninn og hvíslaði í eyra hans: "Farðu og sæktu mömmu þína."
!!!!!!!!!!
Eftir
25 ára starf í tölvubransanum var Einar gjörsamlega búinn að fá
nóg
af öllu stressinu. Hann hætti í vinnunni og keypti sér 30 hektara lands
langt
uppi í sveit eins langt frá mannabyggðum og hægt var.
Bréfberinn
kom við einu sinni í viku og kaupfélagið sendi honum vörur
einu
sinni í mánuði. Annars var hann umlukinn kyrrð og ró.
Eitt
kvöldið, eftir um það bil sex mánaða einangrun, bankar einhver á
dyrnar.
Einar fer til dyra og úti stendur svakalegur durgur. Hann segir:
"Heiti
Sigurmundur ... Nágranni þinn hinumegin við fjallið ... Partý hjá
mér
á laugardagskvöldið ... hélt þig langaði til að kíkja."
"Frábært!",
sagði Einar. "Eftir sex mánaða einangrun er ég tilbúinn til
að
hitta sveitungana. Ég þigg boðið með þökkum."
Sigurmundur
gerir sig líklegan til að fara en snýr sér að Einari og
segir:
"Best að vara við ... mikið drukkið."
"Ekkert
mál. Eftir 25 ár í tölvubransanum þá get ég drukkið nánast alla undir
borðið."
Aftur
gerir Sigurmundur sig líklegan til að fara en snýr sér við í
dyrunum
og segir: "Líklegast mikið slegist."
"Hrikalegt",
hugsar Einar með sér ... "harðgert lið." "Jæja, mér kemur
ágætlega
saman við flesta. Ég kem. Takk fyrir að bjóða mér."
Aftur
gengur Sigurmundur í burtu en snýr sér við í dyrunum og segir:
"Oftast
brjálað kynlíf í partýum hjá mér."
"Heyrðu,
það er ekki vandamálið" segir Einar, "þú veist það kannski
ekki
að ég hef verið algjörlega einn í sex mánuði! Ég kem sko alveg
örugglega
... en segðu mér, í hverju ætti ég að mæta; jakkafötum eða
lopapeysu?"
Sigurmundur
stoppar enn einu sinni í dyragættinni og segir: "Í hverju
sem
þú vilt, við verðum bara tveir."
!!!!!!!!!!