_____________________________________________________________
NÝJASTA
SLÚÐRIÐ ÚTI Í HEIMI!!!
Dannii
segir foreldra áhyggjufulla.
Ofurbomban
Dannii Minogue systir ýturmeyjarinnar Kylie, segir að foreldrar þeirra séu
orðin áhyggjufull um að eignast aldrei barnabörn.
Skutlurnar sem báðar eru komnar á fertugsaldur eiga einn bróður sem er líka
skriðinn yfir þrítugt.
Dannii segir foreldrana þó ekki þurfa að örvænta því fyrr en síðar
muni hún fæða þeim
Nicole Kidman og Jim Carrey??

Nicole Kidman er sögð hafa
farið á leynilegt stefnumót með grínleikaranum Jim Carrey. Þau sáust snæða
kvöldverð á veitingastað í New York. Vitni sagði að þau hefðu sýnt
hvort öðru mikinn áhuga og þetta hefði virst meira heldur en tveir vinir út
að borða saman. Nicole hefur ekki verið í alvöru sambandi síðan hún og
fyrrum eiginmaður hennar Tom Cruise skildu. Slúðurblöðin hafa þó reynt að
bendla hana við töffara á borð við Robbie Williams, Tobey Maguire, Vin
Diesel og Jude Law en Kidman hefur þvertekið fyrir þessar sögusagnir. Hún
sagði þó í viðtali um daginn að hún væri mjög einmanna, í leit að ástinni
og vildi finna einhvern sem elskaði hana af alvöru. Kidman sagðist vera orðin
þreytt á ólukku sinni í karlamálum. Jim hefur ekki verið heppinn þegar
kemur að hinu kyninu heldur en hann er nú í málaferlum við fyrstu eiginkonu
sína Melissu vegna barnabóta. Hjónaband hans við seinni konu sína, Lauren
Hutton entist mjög stutt og einnig samband hans við leikkonuna Renee
Zellweger.
Sjá
fleiri eldri fréttir