Sagan á bakvið Young Gods
Við byrjuðum að rappa og semja árið 1998 og úr því varð Young Gods (Ungir Guðir), Jonni samdi textana og við röppuðum báðir . En það endaði með því að ég (jói) fór líka að semja texta sjálfur (og það "auðvitað" á ensku). Við byrjuðum að semja texta á íslensku árið 1999, en vorum samt meira að semja á ensku. Textarnir voru samt ekki um neitt nema einn, sem hét "Pigs" og var um löggur og það var MJÖG mikill wannabe texti. Við gerðum enga takta því við kunnum það ekki, en í staðin notuðum við einhverja takta sem Frikki (Igore) lét okkur fá. Við tókum þátt á Rímnaflæði árið 2000 með "Pigs" og tvö önnur lög. Árið 2001 lærðum við að búa til takta í forriti sem heitir FruityLoops. Fyrstu taktarnir sem við gerðum voru alls ekki góðir en fljótlega þá náðum við tökum á þessu forriti. Á Rímnaflæði árið 2001 gerðum við hræðileg mistök, við tókum þátt með lag sem er án efa það leiðinlegasta og légegasta lag sem við höfum nokkurntíman gert. Við kölluðum það "ungir guðir". En við lærðum af þessum mistökum og við erum búnir að semja nýtt lag sem heitir "ungir guðir". Árið 2002 kom á netið 2 lög eftir okkur, þau hétu "eg er minn eginn guð" og "sá hlær best sem síðast hlær". Við fengum mjög mikið af skítköstum á huga út af þessum lögum en það er þeim að þakka að við fórum að bæta okkur. En við ætlum bara best að vona það að við munum ná langt.
Peace...