Áhugamál
Home Stjörnukort Dóru Stjörnukort Gunnars Gestabókin Áhugamál Myndaalbúmið Krækjur Ferðalögin okkar Um okkur Upphaf Dagbókin

 

 

Sameiginleg áhugamál

bullet

Keila - Við förum reglulega saman í keilu og höfum alveg rosalega gaman af.  Við stundum bæði Keilu í Mjódd og upp í Öskjuhlíð.  Þetta eru auðvitað alveg gjörólíkir staðir, og meira stuð í kringum mann í Öskjuhlíð.  Metið mitt er 119 en Gunnars 141.

bullet

Fótbolti - Ég hafði engan áhuga á fótbolta áður en ég kynntist Gunnari, en honum tókst að smita mig.  Það kom loksins einhver sem hafði áhuga á að útskýra fótbolta fyrir mér!  Uppáhalds liðið okkar í íslenska boltanum er Grindavík og höfum alltaf farið á leiki í sunar þegar við erum í fríi og höfum tíma.  Varðandi enska boltann, þá er Gunnar Manchester United fan en ég er ennþá í "Sviss" hvað það varðar.  Hef sem sagt ekki tileinkað mér eitt lið ennþá og veit ekki hvort ég geri.

bullet

Ferðalög -  Okkur þykir báðum mjög gaman að ferðast, og höfum við verið mjög dugleg að ferðast innanlands síðan við kynntumst.  Við eigum ennþá eftir að fara erlendis saman.  Sjá nánar um ferðalög í þar tilgerðum link hérna á heimasíðunni.

bullet

Útivist - Við förum mjög mikið út að labba og líka farið í lengri gönguferðir.  Við höfum gengið upp á Þorbjörn (fjall við Grindavík), Miðfell, Hljóðakletta, Dettifoss og svo síðast gengum við að Glym sem er stærsti foss landsins.

Áhugamál Gunnars

bullet

Forritun - Hann hefur mjög gaman að forrita og reynir að eyða sem mestum tíma í það.  Hann hefur m.a. forritað leiki, forrit fyrir R&J og er núna að forrita fyrir málningardeild Húsasmiðjunnar.  Og er að stefna á nám í forritun.

bullet

Stærðfræði - Hann hefur mjög gaman að kenna stærðfræði og gerir það í einkatímum.  Hann er mjög talnaglöggur.

bullet

Tónlist - Uppáhald Gunnars í þessum málum er Megas, en svo heldur hann einnig upp á Cranberries, U2, Smashing Pumpkins og fleiri.

bullet

Júdó - Hann æfði júdó á yngri árum og þjálfaði nokkra stráka hjá UMFG þar til í Maí 2002.

Áhugamál Dóru

bullet

Akrýl myndir - Ég hef mjög gaman af því að mála akrýl myndir og hef gert mikið af því.  Ég er aðeins að reyna fyrir mér í vatnslitum.

bullet

Kortagerð - Ég geri kort fyrir öll tækifæri - sjá www.islandia.is/doram

bullet

Tónlist - Ég er ekki alveg á sömu línu og Gunnar.  En hef þó mjög gaman af Cranberries, The Corrs og U2.  Mitt uppáhald í íslensku flórunni er Á móti Sól og Sálin.  En svo er ég inn á "mellow" línunni, þessari væmnu og líka þessari popp-rokkuðu...

bullet

Hreyfing - Ég hef mikinn áhuga á líkamsrækt og fór að taka sjálfa mig í gegn fyrir ári síðan hvað það varðar, en það er þó komin smá deyfð núna sem ég stefni á að breyta!!  Ég æfi í Planet Pulse, upp á Esju.