Site hosted by Angelfire.com: Build your free website today!
Komdu, lestu, njóttu, hér sé friður
Tuesday, 24 January 2006
Friðurinn
Topic: Friður
Sæl veriði og velkomin á friðinn. Þakkargjörð dagsins kemur frá Danna Lama. Hversu mikil snilld er það að myrkrið sé að styttast og dagurinn að lengjast? Nú er mun bjartara en áður þegar ég stíg útaf vinnustað mínum í lok dags. Það er jafnvel að koma bara vor. Mér persónulega finnst snilldin ein að lifa núna. Skammdegið hefur oft náð tökum á mér og ég hef jafnvel fundið hálfgerða innilokunarkennd þegar myrkrið grúfir yfir allann daginn. Nú er ljósið að brjótast í gegn og ég er vel þakklátur fyrir þessa þróun. Taktu stund og njóttu þess að vera til. Það virðist nefnilega satt sem hefur verið sagt. Það kemur alltaf dagur á eftir nóttinni.

Posted by blog/dannihjalta at 10:13 AM GMT
Post Comment | Permalink | Share This Post

Newer | Latest | Older

« November 2008 »
S M T W T F S
1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30
Entries by Topic
All topics  «
Friður